Ferill 1034. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1500  —  1034. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um vegakerfi og vegaframkvæmdir á Vesturlandi.

Frá Maríu Rut Kristinsdóttur.


     1.      Hvernig sér ráðherra fyrir sér að hugað verði að vegakerfi á Vesturlandi til framtíðar í ljósi þess að þjóðvegir 54, 56 og 60 eru að stórum hluta að verða ónýtir og umferðarþungi á svæðinu hefur aukist mikið undanfarin ár?
     2.      Kemur til greina að forgangsraða vegaframkvæmdum á Vesturlandi ofar í samgönguáætlun vegna ástands vega þar?


Skriflegt svar óskast.